Hulda H.
11.06.2007 21:50:07 / huldah

Byrjuð að vinna aftur

Halló gott fólk sem nennir að kíkja við á síðunni minni!

Við fórum í sumarfrí til Svíþjóðar 2 síðustu vikurnar í maí. Komumst yfir margt á stuttum tíma: Gautaborg, Stokkhólmur, Uppsala, Forsheda í Smálandi, stutt stopp í Linköping og svo aftur til Uppsala. Ferðin var vel heppnuð en veðrið hefði getað verið betra.

Eva litla er bara hress. Hún verður eins árs í næstu viku. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.

Svo er ég byrjuð að vinna aftur á hjartadeildinni. 60% kvöld og helgarvaktir. Dagarnir verða svolítið langir að vakna kl. 07 með Evu og vera með henni þar til Birkir kemur heim kl. 15 og þá fer ég í vinnuna og kem heim um miðnætti. Ekki mjög fjölskylduvænt kerfi kannski en þannig þurfum við ekki að setja hana í pössun strax. Hún fer svo til dagmömmu um áramótin.

Tölvan er svo hægvirk að ég ætla að segja þetta gott í bili.

Kveðja Hulda. 


» 22 hafa sagt sína skoðun